top of page

Að mæta sér með mildi

Yin Yoga, Bandvefslosun & Tónheilun

Starts Jan 22, 2025
24.900 íslenskar krónur
Rafstöðvarvegur

Available spots


Service Description

Á þessu námskeiði er rými til að mæta sér með mildi, leyfa sér að tengjast likamanum, hlusta á innra talið, vera í kyrrðinni og leyfa sér að finna og sleppa tökum á því sem þjónar þér ekki lengur. Á þessu rólega og nærandi námskeiði nýtum við Bandvefslosun með boltum og Yin Yoga til að losa um bandvef og taugakerfið okkar og einnig til að losa um stífleika og auka hreyfigetu í líkamanum okkar. Allir tímar enda með ljúfri tónheilun, þar sem taugakerfið fær djúpnæringu og þú færð að fljóta um í silkirúmi í þyngdarleysi og slaka á. Yin Yoga: Yin Yoga er mjúkt Yoga. Hverri stöðu er haldið í 2-5 mínútur í senn, til að ná að vinna djúpt inn í bandvefinn. Yin Yoga er oft iðkað í lækningarskyni, t.d. vegna líkamlegra meiðsla eða andlegra áfalla, því það er sérstaklega gert til að losa um uppsafnaða spennu og streitu í líkama og taugakerfi okkar. Flestar stöður eru í sitjandi eða liggjandi stöðu og notast er við yoga kubba og púða til að mæta líkamanum þar sem hann er staddur hverju sinni. Áhersla er lögð á andardráttinn, þar sem þú lærir að anda þig í gegnum óþægindi og sitja með hugsunum þínum. Bandvefslosun Body Reroll: Body Reroll notum við misstóra og mjúka bolta til að nudda auma vöðva og bandvef. Bandvefur er stoðvefur sem hefur þann tilgang að tengja saman mismunandi vefi og vera milliliður í flutningi næringarefna og taugaboða. Body Reroll getur hjálpað til við að draga úr verkjum og minnka vöðvaspennu, auka hreyfifærni, hreyfanleika og liðleika, bæta líkamsstöðu, undirbúa líkamann fyrir átök og draga úr streitu og flýta fyrir endurheimt. Við notumst við kubba og blöðrubolta til hjálpa okkur við æfingarnar og hér er tækifæri til að læra að hlusta á líkamann sinn, tengja sig við rólega öndun og gefa eftir inn í spennu. Tónheilun: Tónheilun hefur áhrif á bæði líkamlegt og andlegt ástand þitt með því að hreyfa við því sem er fljótandi í líkama þínum sem og hreyfa við orkulíkamanum þínum. Víbringurinn sem kemur frá tónunum hefur áhrif á allt umhverfið og hver fruma titrar á sínum hraða sem verður til þess að hreyfing á sér stað og losar um hvort sem það eru líkamlegir verkir eða stöðnuð orka, tilfinningaleg eða tengd orkustöðvum þínum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að tónheilun hjálpar til við að slaka á taugakerfinu, losar um stress og kvíða, bætir svefn, eykur innri frið, veitir jafnvægi, eykur skýrleika, stuðlar að tilfinningalegu jafnvægi, eykur sjálfsmildi og vellíðan. Kennari: Lovísa, Yogakennar, Tónheilari og Reikimeistari


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Ef þú ætlar að hætta við eða breyta tímanum vinsamleg gerðu það 24 tímum fyrir tímann


Contact Details

  • Rafstöðvarvegur, Reykjavík, Iceland

    454 3130

    info@edenyoga.is


bottom of page