top of page

KAP með Cacao og tónheilun

Kundalini Activation Process með Írisi Ann, Kolbrúnu & Danna

2 hr
8.500 íslenskar krónur
Rafstöðvarvegur

Service Description

Einstakur tími í KAP fyrir jólin þar sem við hefjum þessa dásemdarstund með Cacao og Danni tónheilari og tónlistarmaður sér um lifandi tónlist allan tímann. KAP er Djúp Orkuvinna Við vinnum með þína innri orku, hjálpum þér að komast nær kjarnanum. Mikil sjálfsvinna og heilun á sér stað í þessum tímum. Ákveðið hugleiðslu ástand sem hjálpar þér að vinna úr streitu, orkuleysi, vanlíðan, bætir svefn, eykur sköpun og þannig má lengi telja. Kundalini lífskrafturinn býr innra með okkur öllum. Fólk upplifir allt milli þess að finna fyrir djúpslökun, losa um allskonar tilfinningar. Getur fundið fyrir titring og þörf fyrir hreyfingu. En flestir eiga það sameiginlegt að nærast af þessum tíma, tengjast betur sjálfum sér og líða almennt mun betur. Smjör fyrir taugakerfið þitt. Við byrjum oft á öndunaræfingum eða hristum okkur aðeins til að keyra orkuna í gang. Svo liggur þú á dýnu í rúmlega klukkutíma, spiluð er há tónlist til þess að allir geta horfið inn í sinn heim, tónlistin spilar líka sitt hlutverk í prósessnum. Við snertum nokkra orkupunkta líkamans en vinnum líka með orkuna án snertinga fyrir ofan ykkur. Komdu í þægilegum fatnaði og með augngrímu eða augnhvílu með þér (við erum einnig með augngrímur til láns). Hlökkum til að taka á móti ykkur. Íris Ann, Kolbrún og Danni leiða stundina.


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Ef þú ætlar að hætta við eða breyta tímanum vinsamleg gerðu það 24 tímum fyrir tímann


Contact Details

  • Rafstöðvarvegur, Reykjavík, Iceland

    454 3130

    info@edenyoga.is


bottom of page