Handan ljóssins: Andinn og hið heilaga ég - Samstund með Írisi Ann
Mon, Oct 26
|Jógamiðstöðin Eden, Rafstöðvarvegur, Reykjavík
Fyrsta kvöldið í nýrri samstundarröð um andlega vakningu, Andann og undrið við að vera manneskja. Frjáls framlög. Öll velkomin.
Time & Location
Oct 26, 2026, 5:00 PM – 7:00 PM
Jógamiðstöðin Eden, Rafstöðvarvegur, Reykjavík
About the event
Handan ljóssins: Andinn og hið heilaga ég
Verið hjartanlega velkomin á fyrsta kvöldið í Handan ljóssins, nýrri samstundarröð (Satsang series) um andlega vakningu, Andann og undrið við að vera manneskja.
Fyrsta röddin er Íris Ann.
Íris Ann hefur um árabil kannað andlegar víddir lífsins og fléttað þær saman við sköpun, innsæi, mannleg samskipti, hversdagsleikann og fræðilegar víddir. Hún kemur til okkar með sína eigin reynslu, sýn og sögur af því að vera bæði andleg og mannleg vera — og því sem þar á milli leynist.
Kvöldið hefst á frásögn eða samtali við Írisi Ann og síðan opnum við fyrir spurningar, hugleiðingar og samtal við viðstödd. Þetta verður náin og óformleg samvera, fremur en hefðbundinn fyrirlestur eða námskeið — þar sem ólíkar upplifanir og sjónarmið fá að mætast, augliti til auglitis, hjarta til hjarta.
