top of page

Handan ljóssins – Samstund / Beyond the Light – Satsang

Ný gestarödd í hvert sinn · Næsta kvöld 30. nóv., gestur kynntur fljótlega

1 h 30 minEden Yoga

Service Description

Handan ljóssins – Samstund (Satsang) // Beyond the Light – Satsang series: English below Handan ljóssins er samstundarröð (Satsang series) í Eden um andlega vakningu, Andann og undrið við að vera manneskja. Á hverju kvöldi kemur ný gestarödd og deilir sinni andlegu vegferð, reynslu og sýn. Næsta kvöld: Mánudaginn 30. nóvember 2026, kl. 17:00–18:30 Gestarödd kvöldsins verður kynnt fljótlega. Fyrsta kvöldið var 26. október með Írisi Ann. Kvöldið hefst á frásögn eða samtali við gestaröddina og síðan opnum við fyrir spurningar, hugleiðingar og samtal við viðstödd. Þetta er náin og óformleg samvera, fremur en hefðbundinn fyrirlestur eða námskeið — þar sem ólíkar upplifanir og sjónarmið fá að mætast, augliti til auglitis, hjarta til hjarta. Hvar og hvenær? Mánudaginn 30. nóvember 2026, kl. 17:00–18:30 Jógamiðstöðin Eden, Rafstöðvarvegi, Reykjavík. Frjáls framlög. Öll velkomin. __ Um Handan ljóssins Hvað gerist þegar við uppgötvum eitthvað í okkur sem er stærra en sú manneskja sem við héldum okkur vera? Og hvað gerist svo þegar við snúum aftur að manneskjunni sjálfri — með alla hennar sögu, sérstöðu, gleði, mótsagnir og takmarkanir? Í andlegri leit er athyglinni gjarnan beint að ljósinu, einingunni og því sem er handan hins einstaklingsbundna sjálfs. En hvað ef manneskjan sjálf, í allri sinni sérstöðu, er ekki aðeins eitthvað sem þarf að sjá í gegnum eða yfirstíga, heldur líka dýrmæt birtingarmynd þess sem við leitum að? - Hvað ef hið bláa uppgötvar ekki aðeins að það er ljós, heldur vaknar ljósið til undursins yfir því að vera blátt? Á hverju kvöldi fær ein gestarödd rými til að deila sinni andlegu vegferð, reynslu og sýn. Raddirnar verða ólíkar, rétt eins og leiðirnar sem við förum. Hér er ekki ein rétt heimsmynd eða fyrirfram ákveðin niðurstaða. Við komum saman til að hlusta, læra, spyrja og uppgötva — hvert á okkar forsendum. ____ English: Beyond the Light – Satsang series Beyond the Light is a Satsang series at Eden exploring spiritual awakening, Spirit, and the wonder of being human. Each evening a new guest voice shares their spiritual journey, experiences, and perspective. Next gathering: Monday, November 30, 2026, 17:00–18:30 The guest voice for this evening will be announced soon. The first gathering was on October 26 with Íris Ann. The evening begins with the guest sharing their story, either in their own words or in conversation, followed by questions, reflections, and open discussion. Rather than a traditional lecture or workshop, this is an intimate, informal gathering where different experiences and perspectives can meet — eye to eye, heart to heart. When and where? Monday, November 30, 2026, 17:00–18:30 Eden Yoga Centre, Rafstöðvarvegur, Reykjavík, Iceland. Voluntary contributions. All are welcome. About Beyond the Light What happens when we discover something within ourselves that is greater than the person we thought we were? And what happens when we turn back towards that very person — with all their history, uniqueness, joys, contradictions, and limitations? Spiritual seeking often draws our attention towards the light, Unity, and what lies beyond the individual self. But what if the human being, in all their uniqueness, is not merely something to see through or transcend, but also a precious expression of what we seek? - What if blue not only discovers that it is light, but light awakens to the wonder of being blue? Each gathering gives one guest voice the space to share their spiritual journey, experiences, and perspective. The voices will be as different as the paths we walk. There is no single correct worldview here, and no predetermined conclusion. We come together to listen, learn, question, and discover — each on our own terms.


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Ef þú ætlar að hætta við eða breyta tímanum vinsamleg gerðu það 24 tímum fyrir tímann


Contact Details

  • Rafstöðvarvegur 1a, Reykjavík, Iceland

    454 3130

    info@edenyoga.is


bottom of page