top of page

Upplifanir tilvaldar fyrir fyrirtæki sem vilja fjárfesta í vellíðan og árangri starfsfólks

FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Eden er rými sem færir þig aftur í jafnvægi og nærir bæði líkama og huga. Í hröðu og krefjandi vinnuumhverfi skiptir vellíðan starfsfólks sífellt meira máli, ekki bara fyrir líðan, heldur einnig fyrir árangur og sjálfbærni í rekstri. 

Eden býður upp á sérsniðnar lausnir fyrir þinn hóp.

Hafðu samband við okkur á info@edenyoga.is fyrir nánari upplýsingar. 

​Tónheilun, taugakerfi & Cranio

Djúp slökunarupplifun sem róar taugakerfið og losar uppsafnaða streitu ásamt stuttri innsýn í virkni líkamans og Cranio meðferð. Starfsfólk kemur út með meiri einbeitingu, skýrleika og jafnvægi sem styður bæði vellíðan og árangur í starfi. 

Yoga Nidra

Leidd djúpslökun sem endurnærir líkama og huga á stuttum tíma. Aðeins 40 mínútur geta jafnast á við marga klukkustunda svefn, fullkomið til að draga úr kulnun, auka orku og bæta einbeitingu á vinnustað. 

9D Breathwork

Róandi öndunarupplifun sem hjálpar starfsfólki að losa um spennu, slaka á og ná jafnvægi. Þjálfar sjálfsstjórn, styrkir andlega seiglu og eykur getu til að takast á við krefjandi aðstæður í vinnu. 

Enneagram

Viltu bæta samskipti, auka skilning og styrkja teymið þitt á dýpri hátt? Enneagram fræðsla hjálpar starfsfólki að skilja eigin hvata, viðbrögð og samskiptastíl - sem skilar sér beint í betri samvinnu og minni árekstrum. 

Eden-Logo.png

Friðsæll griðastaður í Reykjavík þar sem jóga, öndunaræfingar, hljóðheilun og núvitundarupplifanir sameinast til að endurheimta jafnvægi, næra vellíðan og hvetja til innihaldsríkra tengsla.

Heilsuupplifanir

Jóga og hugleiðsla

Hljóðheilun

9D öndunaræfingar

Jóga Nidra

Fyrirtækjaheilsa

Samband

Eden Yoga · Rafstöðvarvegi 1 · 110 Reykjavík · Ísland

  • Facebook
  • Instagram

Kt. 4412180520 · ©2026 allur réttur áskilinn

bottom of page