top of page
Vara ekki lengur í boði. Hafðu samband til að fá frekari uppl.

Einka tónheilun í silki fyrir hópa

Takmarkaður fjöldi & 2 leiðbeinendur

  • 36.000 íslenskar krónur
  • Rafstöðvarvegur

Service Description

Við bjóðum upp á einka tónheilun fyrir hópa, vertu í sambandi á info@edenyoga.is ef þú hefur áhuga að koma með vinkonu eða vina hóp, fyrirtæki, félagasamtök og við finnum tíma fyrir ykkur. Í þessum tíma náum við djúpri slökun inn í taugakerfið okkar með gong hugleiðslu, kristalskálum, trommum og öðru tóndekri. Það er hægt að velja um að láta fara vel um sig á gólfinu og styðja við líkamann með púðum og teppum eða fljóta um í silki sem líkist því að fljóta um í vatni. Þú flýtur um í tóndekri sem hjálpar þér að losa um stress og óþægindi sem kann að hafa sest að í líkama þínum. Tónheilun hefur áhrif á bæði líkamlegt og andlegt ástand þitt með því að hreyfa við því sem er fljótandi í líkama þínum sem og hreyfa við orkulíkamanum þínum. Víbríngurinn sem kemur frá tónunum hefur áhrif á allt umhverfið og hver fruma titrar á sínum hraða sem verður til þess að hreyfing á sér stað og losar um hvort sem það eru líkamlegir verkir eða stöðnuð orka, tilfinningaleg eða tengd orkustöðvum þínum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að  tónheilun hjálpar til við að slaka á taugakerfinu, losar um stress og kvíða, bætir svefn, eykur innri frið, veitir jafnvægi, eykur skýrleika,  stuðlar að tilfinningalegu jafnvægi, eykur sjálfsmildi og vellíðan. Fyrir 9 manns eða færri 36.000 kr Fyrir 10-14 manns 56.000 kr Fyrir 14-18 manns 72.000 kr umfram 18 manns er hægt að liggja á mjúkum dýnum umkringdum púðum og teppum, 4000 kr á mann, allt að 25 manns. Hafðu samband til að panta fyrir þinn hóp! Leiðbeinendur: 1-2 af Eden fjölskyldunni Sara María, Lovísa, Kolbrún, Danni, Tobi, Þorgerður eða Dóra.


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Ef þú ætlar að hætta við eða breyta tímanum vinsamleg gerðu það 24 tímum fyrir tímann


Contact Details

  • Rafstöðvarvegur, Reykjavík, Iceland

    454 3130

    info@edenyoga.is


bottom of page