top of page

Bókaspjall með Gunnari Dan - UFO 202

2 hr
1.500 íslenskar krónur
Rafstöðvarvegur|Eden Yoga

Service Description

Cacao og spjall með Gunnari Dan. Gunnar hefur á síðustu tveim árum verið ötull talsmaður fyrir UFO málaflokkinn á Íslandi. Samhliða hlaðvarpsþáttunum Geimsýra hefur hann einnig skrifað tvær bækur, UFO101 og UFO202. Gunnar vill meina að í þessum málaflokk sé að finna möguleg svör við okkar stærstu spurningum. Hvaðan komum við, hvaðan koma trúabrögðin og hvert erum við á leið hvað varðar félagslegan , andlegan og vísindalegan þroska. Uppljóstranir á gögnum hafa verið að eiga sér stað síðustu ár og er innihald þessara gagna hreint út sagt jaðarkennt og dularfullt. Heimurinn í heild sinni er að breytast, heimsmyndin er að breytast og spurningin er hvort maðurinn sé nú hæfur til að afla sér upplýsinga sem stuðla að því að rétt tímalínu verði valin. Tímalína sem mun leiða okkur öll sem eitt í átt að einingu, kærleika og þroska. Gunnar mun í sínum fyrirlestri fara yfir þessi mál og kynna innihald sinna bóka eftir að Ólafur Aron Sveinsson hefur leitt okkur inn í hugljúfa og jarðtengda hugleiðslu.


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Ef þú ætlar að hætta við eða breyta tímanum vinsamleg gerðu það 24 tímum fyrir tímann


Contact Details

  • Rafstöðvarvegur 1a, Reykjavík, Iceland

    454 3130

    info@edenyoga.is

  • Rafstöðvarvegur 1a, Reykjavík, Iceland

    454 3130

    info@edenyoga.is


Eden-Logo.png

Friðsæll griðastaður í Reykjavík þar sem jóga, öndunaræfingar, hljóðheilun og núvitundarupplifanir sameinast til að endurheimta jafnvægi, næra vellíðan og hvetja til innihaldsríkra tengsla.

Heilsuupplifanir

Jóga og hugleiðsla

Hljóðheilun

9D öndunaræfingar

Jóga Nidra

Fyrirtækjaheilsa

Samband

Eden Yoga · Rafstöðvarvegi 1 · 110 Reykjavík · Ísland

  • Facebook
  • Instagram

Kt. 4412180520 · ©2026 allur réttur áskilinn

bottom of page