Innra ferðalag - Integration hóptími
Service Description
Innra ferðalag – Úrvinnsla og samþætting Hugvíkkandi upplifanir geta opnað nýjar víddir innra með okkur. En sjálf upplifunin er aðeins byrjunin. Raunveruleg umbreyting á sér stað þegar við gefum okkur tíma og rými til að skilja, samþætta og lifa það sem við upplifðum. Innra ferðalag eru reglulegir hópfundir fyrir fólk sem vill vinna úr reynslu sinni af hugvíkkandi efnum á öruggan, faglegan og nærandi hátt. Hvort sem upplifunin var falleg, krefjandi eða eitthvað þar á milli, þá getur úrvinnsla hjálpað okkur að skilja hvað reynslan er að kenna okkur og hvernig við getum fléttað viskuna inn í daglegt líf. Á fundunum verður: Fræðsla um samþættingu (integration) og hvernig umbreyting á sér stað. Leidd sjálfskoðun og ígrundun. Öruggt og þægilegt rými til að deila reynslu ef fólk kýs. Verkfæri til að vinna áfram með upplifanirnar í daglegu lífi. Stuðningur frá öðrum sem eru á svipaðri vegferð. Það er engin krafa um að deila. Sumir koma til að hlusta, aðrir til að tala. Allt er velkomið. Fundirnir eru ekki meðferð né hvetja þeir til notkunar hugvíkkandi efna. Þeir eru ætlaðir þeim sem hafa enga reynslu en eru forvitnir og þeim sem hafa þegar átt slíka reynslu, og vilja fá stuðning við að skilja hana, samþætta og nýta hana sem verkfæri til persónulegs vaxtar og aukinnar vellíðanar. Þú ert hjartanlega velkomin/n, nákvæmlega eins og þú ert.
Upcoming Sessions
Cancellation Policy
Ef þú ætlar að hætta við eða breyta tímanum vinsamleg gerðu það 24 tímum fyrir tímann
Contact Details
Rafstöðvarvegur 1a, Reykjavík, Iceland
454 3130
info@edenyoga.is
Rafstöðvarvegur 1a, Reykjavík, Iceland
454 3130
info@edenyoga.is