top of page

Kvennahringur með Helgu Snjólfs

✨ Hugleiðsla – Innblástur - Valdefling - Tónheilun – Djúpslökun ✨

Starts Apr 19
6.900 íslenskar krónur
Rafstöðvarvegur

Available spots


Service Description

Velkomin á kvennahring þriðja sunnudag í mánuði klukkan 19:30 - 21:00. Hvert kvöld er með sama sniði en nýtt þema í hverjum mánuði! 19.apríl - Getur verið að við séum meðvirkar? 17.maí - Þú mátt finna til! Finna til gleði, reiði, doða, spenningi og alls þar á milli. 14.júní - Við berum ábyrgð á okkar eigin hamingju! Langar þig að rækta systralagið og tengjast sjálfri þér dýpra?
 Komdu í nærandi kvennahring þar sem þú færð tækifæri til að eiga stund með þér sjálfri, spegla þig í samkvenlegri reynslu og visku og stilla þinn innri áttavita. Við sköpum rými þar sem þú mátt slaka á, losa og næra, án þess að þurfa að vera neitt annað en þú ert. Helga Snjólfs leiðir kvöldið og nýtir fjölbreytt verkfæri sem hún hefur tileinkað sér í gegnum árin til að leiða stundina þannig að hver kona fær eðastund með sjálfri sér á eigin forsendum. Öruggt og fallegt rými þar sem þú getur mætt sjálfri þér með virðingu og væntumþykju. 🎶 Tónlistin, samveran, athöfnin, vinnur saman að því að þú gangir út nærð á sál og líkama og með völdin í eigin lífi. 💫 Þetta er rými fyrir konur sem vilja stíga inn í styrk sinn, mýkt sína, og muna það sem þær vissu alltaf.


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Ef þú ætlar að hætta við eða breyta tímanum vinsamleg gerðu það 24 tímum fyrir tímann


Contact Details

  • Rafstöðvarvegur 1a, Reykjavík, Iceland

    454 3130

    info@edenyoga.is


bottom of page