top of page
Vara ekki lengur í boði. Hafðu samband til að fá frekari uppl.

Radd- og söngnámskeið með Arnmundi

Starts Mar 31
27.900 íslenskar krónur
Eden Yoga

Available spots


Service Description

RADD- OG SÖNGNÁMSKEIÐ MEÐ ARNMUNDI BACKMAN Er 4 vikna námskeið í Eden Yoga sem snýr að styrkingingu raddarinnar í söng og tali. Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja kynnast og skilja rödd sína betur til að auka sjálfstraust og frelsi bæði í tali og söng. Námskeiðið er byggt upp á eftirfarandi þáttum: 1. Að kynnast hljóðfærinu/röddinni betur og átta sig á hvaða lykilþættir spila inn í raddbeytingu. Hvað verður til þess að rödd þreytist, læsist eða skorti styrk? 2. Tæknileg aðferðafræði og æfingar til að styrkja og opna röddina. 3. Að varpa ljósi á samspil líkamans, tilfinninga og raddarinnar. Og hvaða þátt slökun, spenna og kvíði spilar í raddbeytingu og söng. Á námskeiðinu er stuðst við núvitundaræfingar og öndun, teygjur og styrktaræfingar sem ofið er saman við raddtækni og söng með það að markmiði að þáttakendur fá aukin skilning á eftirfarandi atriðum: 1. Áhrif líkamsvitundar á rödd. 2. Samspil stuðnings og slökunar í söng. 3. Áhrif mismunandi raddbeytingar. 4. Hvernig tölum við svo það sé hlustað á okkur? 5. Hvernig á ég heilbrigt samband við eigin rödd? Námskeiðið hefst 31. mars, fer fram á þriðjudagskvöldum klukkan 19:30 og stendur yfir í 90 mínútur. Leiðbeinandi: Arnmundur Backman


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Ef þú ætlar að hætta við eða breyta tímanum vinsamleg gerðu það 24 tímum fyrir tímann


Contact Details

  • Rafstöðvarvegur 1a, Reykjavík, Iceland

    454 3130

    info@edenyoga.is


bottom of page